Jæja já, ég er mættur aftur og alveg jafn clueless. Ég ætla samt að reyna að vera bloggari sko. Málið er að ég er bara ekki að fatta hvernig mar á að vera það... *dæs*
Face it sko, ég kann ekki einu sinni að linka síður inn á mína, og er þar af leiðandi aleinn hérna sko, og engin veit að ég er bloggari even. Og ef það er ekki sad, hvað er það þá? Múhahaha!
Á maður ekki að kynna sig hérna, ef ské kynni að ég yrði nú lesinn someday... jessirí. Enniveis, þá er ég Nalli og er 29 ára og hamingjusamlega ástfanginn af manni minna drauma sko; Ingó sæta sem er sólin mín, tunglið mitt og allar stjörnurnar líka... you get it, I´m in love with this guy ;)
Við erum búnir að vera saman í hundrað ár sko, sem eru samt bara rúmlega þrjú og við búum að hjá tengdó (mömmu hans og pabba) sem eru voða góð við okkur sko.
Kræst, ér að upplifa mig eins og ég sé að taka þátt í herra heimur eða e-ð sko... I love children and football, yadiya!
Kannski að ég ætti bara að endurskoða röflið í mér og halda síðan áfram að bloggast þegar ég veit hvað ég ætla að segja, jammz.
Blogg = dagbók ?
Kæra dagbók, (bleik með mynd af Barbie)
Ég fór í nýju vinnuna mína í dag, soldið seint en það var í lagi. það var ekkert að gera. Ég borðaði samloku með skinku og osti. Ég bjó til kaffi, allkindsa. Ég reykti eins og mófó. Ég talaði við a few good friends. Ég kom heim og kyssti gæjann minn. Við snæddum með tengdó. Gæjinn fór út á fund með vinkonum sínum. Ég skellti mér í fletið og ræsti Pleisteisjón 2 og sofnaði. Gæjinn kom heim og við horfðum á Friends, mmmmm nammi. Ross og Rachel hættu saman * snökt!* (ps. sería 3 á DVD)
Gæjinn sofnaður, ég að tæpa þetta og ætla svo að halda áfram að lesa frábæra bók, sem ég segi ykkur betur frá seinna, rætí. Abarat eftir Clive Barker. GEÐVEIK!
Ég er hættur í bili. Farið vel með ykkur sæta fólk, be positive and love one another ;)


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home