Allamalla...
Ef að ég er ekki sá allra færasti og duglegasti bloggari í heimi, þá veit ég ekki hvað! Það líður ekki sá dagur að ég sé hérna að deila lífi mínu með sjálfum mér, því viss er ég um að ekki er neinn að lesa mig lengur... Skil reyndar ekkert í þessu. Ég sem legg mig svo mikið fram við að tjá mig hérna... yadiya!
Hæ annars og langt síðan síðast, og takk fyrir síðast já. Af mér er allt gott að frétta "hæ mamma og pabbi!" ennþá. Ég verð samt að viðurkenna að það hefur ekkert stórt gerst í litla lífinu mínu upp á síðkastið. Jújú, fullt af litlum hlutum sem ég nenni ekki að rausa um sko. Enda ekkert spennópennó.is...
Ég hef orðið var við aðsvífandi drunga upp á síðkastið... Færist óðfluga nær og endar sem þrumuský yfir kollinum á mér. Ég sver það! Ég er farinn að greina þrumurnar í fjarska og allt! (Pása til að mæla púlsinn...) Þannig eru mál með vöxtum að ég *gúlp* er að verða gamall sko. Hjálpi mér allir heilagir hestar! Ég á aðeins einn góðan mánuð eftir og síðan er allt búið... þrumur og eldingar. Ég verð þrítugur í júlí. Afhverju! Hvað var mamma að pæla? Hver skipti á mér og þríburunum dularfullu? Afhverju var sett rangt ártal á fæðingarvottorðið? Hver spólaði svona hratt og gerði mig að ósjálfbjarga gamalmenni á nó tæm? Ó grimma veröld! Ef ykkur þykir vænt um mig, þá endilega setjið af stað söfnun fyrir legstein og plássi fyrir aldið hylki mitt. Nema það sé ódýrara að brenna gamla og feita kroppa? Tékkið á því, endilega takk. Nóg um það, ég átti mína glæstu tíma og hvort sem þið trúið því eða ekki, þá var ég einu sinni fimmtíuogþrjú kíló með sítt og heilbryggt hár og bros sem gat tamið villta fola.... *hvar eru geðlyfin?*
Nú já, let´s get back to earth if we can.
Ég og ástin mín erum að fara til útlanda sko, íha!
Ójá, eftir rúmma tvo mánuði þá munum við sjúga Margarítur og Pessímax á Kýpur, og geri aðrir betur. Okkur er farið að hlakka ýkt til, bara næstum eins og það séu að koma jól þegar mar er sjö ára. Ég er farinn að finna hitaþefinn nú þegar sko, og sé í hyllingum pálmatré og strendur. Þarf reyndar að fara að hemja á mér spikið ef ég ætla að njóta mín þarna úti. Gengur ekki að vera með sullið hangandi fyrir sund-g-strengnum eða hvað sem það kallast!
Við ætlum reyndar að skella okkur yfir til Egyptalands líka, vera nokkra nætur í Kairo. Guð einn veit hvor við komumst lifandi frá því. Hef heyrt að það sé svo brenglað fólk þarna úti sem væri víst með að gríta mann niður ef mar tæki upp á því að kjassa sinn heitelskaða spússa og nýstúdent. Kannski að ég ætti að skella mér í drag þarna hjá faróunum, þá fengi ég frið til að kjassa kallinn vitlausan sko. Hvað með það þó ég skakklappist um á hælum með hár undir höndum. Blaðra bara dramantískt á frönsku og allt reddast.
Jæja, Harry Pottur bara að lufsast úr leynum núna. Og allt að verða vitlaust! Sæi mig í anda hangandi í biðröð eftir þessum nörd í mútum sko, no thank you. En samt... verð að viðurkenna að bækurnar eru farnar að kalla á mig smám... en ekki minna mig á það. Ég verð að fá að hrokast aðeins meira.
En ég mundi standa í biðröð eftir Abarat II, ójá. Gegnblautur og snæviþakinn með sólsting, þá mundi ég bíða allaveganna í tvo daga.
Annars er ég að lesa mjög skemmtilegan bókaflokk núna. Soldið sonna Potter dæmi. Heitir His Dark Materials, og er þriggja bóka sinfónía. Er á bók tvö og mæli með. Gaurinn sem skrifar heitir Philip Pullman.
En ekkert toppar samt Abaratið mitt, lesið hana og setjið nýja diskinn hennar Söru Brætman í, og lífið er ljúf, jafnvel þó þið séuð að verða þrítug, nær dauða en lífi.
Ég er hættur, farinn að sinni og kem aftur eftir þrjá mánuði á sirka sama tíma.
Annars fékk ég svo bjarta hugmynd fyrir stuttu sko, og hún var sú að ég mundi fara að skrifa sögu hérna á blogginu bara. Svona næstum þrjúbíó fyrir mig og þig.
Mér finnst nebbilega voða gaman að skrifa, en ég geri bara svo lítið af því. En ef ég fer að gera það hérna, þá gæti það barasta gengið upp og ég farið að gera mikið af því. Og svo á endanum verð ég uppgötvaður af umba sem vill gefa mig út og gera mig heimsfrægari en J.K Rowling og ég á loks fyrir fitusogi og varabústi og allt!
En allaveganna, þá er ég að pæla þetta með að virkja sögusmettuna í mér. Kemur í ljós.
Góða nótt og sæta drauma um heim þar sem engin verður þrítugur og allir eiga meiri pening en Potter kellíng...
Over and out, elskumst og verum elskuð.
Nalli.


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home