Embrace The Golden Girl Within!

mánudagur, nóvember 03, 2003

Return Of The Great Big Blogger... (Splobb!)

Jæja þá elskurnar, þá er ég kominn aftur eftir dágott hlé.
Eins og þið sjáið þá hef ég farið í saklausa lýtaaðgerð: aðeins látið bótoxa á mér varirnar og hysjað upp um mig augnlokin, svona svo fátteitt sé nefnt. Verð að segja að ég er smekklega ánægður með þetta look... *fliss...*

Sit hérna við danska hringborðið mitt, auddað búinn að hylja það með hekkluðum blúndudúk frá síðari heimsstyrjöld. Guðrún heitin Símonar ómar í bakgrunni og ég bryð heimabakaðar skonnsur með ekta norsku marmelaði. Lífið er ljúft.
Eða kannski er ég ekki alveg heill á geði. You tell me ;)

En allaveganna, þá ætla ég að hafa þetta stutt í bili. Er gersamlega út-taugaður eftir allar þessar breytingar á síðunni. Geðlyfin búin í bili og heimilislæknirinn í fríi á Maui.

Hef það gott miðað við heilaskemmdir og aukakíló. Læt ykkur vita hver ég verð næst þegar ég blogga. Þangað til, have a great day, after day.

Love and skonnsur, Nalli.