You call that old bag a present!
Eftir að hafa dressað bloggið mitt svona sjúklega upp, með hjálp Dúsksins míns, þá mætti ætla að ég hefði meiri áhuga á því að tjá mig á því. En nei! Það er nebbilega eitt sem er að pirra mig ennþá sko, og það er djössuns comment kerfið sem ég er búinn að vera að reyna að reisa, og ekkert gengur.
Sjáðu til, ég vil hafa þetta drasl almennilegt sko, og þegar það gengur ekki, then... why bloody bother ;)
En annars er allt gott að frétta sko, er búinn að vera í mínu vanalega vaktafríi. Og það þíðir að þá er ekkert gert annað en að lufast eins og mér sé borgað fyrir það. I wish!
Var samt voða duglegur í dag og tók til. Og þegar ég byrja að taka til, þá er best að engin sé nálægt sko. Þá byrjar nebbilega fullkomnunar árátta dauðans. Mér blöskrar sjálfum stundum...
Það var ástæða fyrir því að ég gerði ekki ræstitækninn að aðalstarfi, það er greinilegt, múhahaha!
Eftir að hafa þrifið upp viðurstyggilegt magn af drasli og rykmaurum með dúndrandi diskó í eyrunum, þá ákvað ég að nóg væri komið. Enda orðið illt í hausnum af því að reyna að muna NÁKVÆMLEGA hvar þessi hlutur var staðsettur. Líka orðið flökurt af því að raða geisla, dvd og tölvudiskum í stafrófsröð. Svo ég beilaði út bara, enda næstum búinn sko. Flott fyrir kallinn að koma heim í skúringar og solls eftir strembinn vinnudag í bankanum, híhí ;)
Það er vinnuhelgi framundan og ég er ekki að fara að nenna því. En skítt með það, brosa bara og bryðja töflur á milli þess sem ég sarga sundur tertusneiðar og bullsýð mjólk í fríking latte, muuuuuuuuuuuuhu!
Hey allir sem eru að lesa þetta baul, þá bið ég bara að heilsa og sé ykkur soon, vonandi verð ég búinn að sletta þessu comment kerfi upp svo það sé hægt að kasta smá skít í mig, I læk it!
Eitt enn: Ríjúníon dauðans nálgast og það er fínt og blessað. Enda grútað hyski upp til hópa, næstum ;)
En ég er ekki alveg búinn að pæla þetta út sko. Böggar mig smá að þurfa að standa í því að fara að leggja inn einhverja peninga á reikning og éta hann svo út með þessu fólki. Hvað ef ég hef ekki lyst á mat eða drykk með þetta pakk í kringum mig? Kjafti bara sko, ætla ekkert að leggja inn bara. Mæti með prózakbros og panta mér hvítlauksbrauð og fanta. Skála við Fjalar og Ellu og dansa um á blessuðum hrokanum. Notalegt :)
Alltílæ þá, ég er farinn áður en ég missi mig í geðlægð.
Love jú tú píses og allt það, sjáumst kát og hýr, baba´s.
Over and out, Nalli.


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home