Embrace The Golden Girl Within!

miðvikudagur, janúar 28, 2004

Hæj! Ammæli í námd! (Varúð... Gamalmenni bætist í hópinn!)

Wúff!
Bara aðeins að tékka mig inn og solls.
Sjá hvað margir eru búnir að skoða þessa lufsu síðu mína, og váhá, allir bara 200 something, múhahaha!

Annars er ekkert að fréttast sko. Nema auddað það að ástin mín er að verða "gömul"...
Þá á ég ekki við að ást mín á honum sé eitthvað aldin, nei nei. Það er hann sjálfur, minn spússi og betri helmingur sem er að verða gamall, íha! Segi bara komin tími til folks ;)
Dúskurinn minn verður bara árinu eldri, og ekki ég, ligaligalálá! Ég er með gálgafrest þangað til í sumar, hjúkket!
Svo er bara að vona að það verði slegið upp veislu til að fagna "gamalmenninu" með stæl. Mundi vilja smá mikið af kökum og rjóma! *Slurp"*
En mest best verður að eiða góðri stund með honum og vinnslunum okkar öllum.

Sjálfur er ég slitinn og farinn á taugum við endalausa kaffigerð: Cappuccino eða Kókó, skiptir ekki máli. Sálin er sködduð.
Drama drama. Það sem ég meina er annars... Hef það fínt, vinn eins og belja á beit og ekkert meira með það.
Er að taka bílinn minn saman þessa daganna, lappa upp á ræfilinn. Búinn að sjoppa undir hann ný dekk *hrollur!*
Lét svo taka hann hágt og lágt, bón og lúsatékk. Svo tékka ég hann inn á bílaspítalann á morgensen, og þar ætti hann að fá bót meina sinna, og verða klár í skoðun. Jesssssss! Ég er mest framtaksamur í heimi bara ;)

Kallinn var að koma heim með diet súkkulaðisjeik handa mér og kannski bara smám nammi namm til að slurpa með Pepsí Maxinu mínu *rop*
Ég ætla að knúsa hann og segi bara bless í bili, sést sún en þangað til, sést ég ekki.... *fliss*
Nalli.