Embrace The Golden Girl Within!

föstudagur, maí 14, 2004

Júróblogg!

Darlings!
Minn mættur aftur, og bara óvenju snemma á ferðini...
Jeminn eini, og ekki einu sinni liðin mánuður síðan síðast, spes ?

Ætla samt ekkert að skjóta rótum hérna, nema hvað.
Júróvision bara á næsta Lördag og ekki hægt að segja annað en að mínum er farið að hlakka svo ógurlega til. Enda mikið Eurovision frík á ferðini. Búinn að vera áhugamaður um þessa há-lágmenningu síðan bleyjan var blaut á bossanum. Munið... þarna þegar Abba vann. Yeah, that´s what I remember. Mín fyrsta æskuminning. Abba í svarthvítu og Waterloo í mono á gufuni. Glæstar minningar. Verst að ég var bara óviti þá... nota bene, ekki að ég hafi mikið breist, íha! (ekki með bleyju lengur samt!)

Við stefnum á svæsið Júrópartý með sætu strákum okkar, og víst er að gaman saman verður það,ójá!
Hver vinnur svo allt heila draslið, hmmm?
Ég spái Ruslönu sigri. Komin tími á Ukraínu bara. Lagið er frábært og þessi kella rokkar feitt. Hún á eftir að meika það held ég, one way or the other.
Er samt líka voðalega skotin í Sænska smellnum. Ferlega catchy dæmi. Má alleg vinna.
Jónsi kella, púffassa... lagið venst alleg, en samt... 11 - 13 sæti ef ég er bjartsýnn.
Grikinn veitir honum mikla samkeppni, sonna líkamlega séð. Þeir væru sætt par ;)

Jæja, kemur í ljós á morgun bara * fiðrildi í malla* :)
Góða skemmtun sæta lið og munið: Ykkar atkvæði skiptir máli.
Látum Jennifer Huddson syndrome-ið ekki endurtaka sig!
Allkindsa everything remind me of you, tata babies.
Nalli