Cheers To The Gúd ´ole Tæms! *Tjí-tjíng!*
Ahhhh, það var svo gaman saman í kvöld hjá okkur.
Sjáðu nebbilega til, gamla gengið kom saman eftir allar þessar vikur og aldir!
Skil ekki hvernig fólk nennir að vera að skakklappast sonna um í miðbænum. Vaðandi reyk og troðin öldurhús, þegar það getur verið saman í rólegheitunum í heimahúsi, súpandi kaffi og gos. Spjalla svo fullt saman um allt og ekkert, maula á nammi og kjaftasögum. Og auðvitað hlusta á ljúfa mjúsík og kannski bara horfa smá á gömlu Divurnar í "Golden Girls"
All in all, mjög næs kvöld hjá okkur hjónakornunum í faðmi Fjalars og Ellu.
Það er samt best að troða sér í háttinn núna sko, enda vinna hjá okkur á morgun. *dæs*
Ætla að sofna út frá ljúfustu tónum. Var að finna út grúví disk með bandi sem kallar sig Almadrava, og er sonna mútsjó chill-át dæmi. Verí gúd indíd.
Bæjó pæjó, er skriðinn upp í til sætasta Dúsksins í heimi, næt og dríms. *Zzzzzzz*


0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home