Embrace The Golden Girl Within!

miðvikudagur, september 29, 2004

Detti Mér Allar Dauðar Flær!

Jæja, hér er maður sestur aftur til skrifta, seeegðu.
Það er nú búin að vera framtaksemi á kauða í dag, enda sjaldan sem frí fást.
Byrjaði daginn á að laumast í heilsu-bústið hans Ingó, sem hann skildi eftir. Verð bara að segja að það var nú ekki eins slæmt og ég hefði haldið. Er ekki mjög mikið gefin fyrir það sem kallast hollt, ætli það verði nú líka ekki minn bani einn daginn, hmmm.
*Flash!* ...fannst á floti í baðkari fullu af Pepsí-Max, skreyttur með sígarettustubbum og einstaka sælgætisbréfi... Notó bara, múhahahaha.

En allaveganna, þá ákvað ég að taka hárlufsuna mína í gegn. Og með það sama brunað upp á Space. Og ó mæ gawd... það er búið að rýgja mig eins og hvert annað villuráfandi sauðfé! Verð að viðurkenna að hárið á mér var mjöööög slæmt fyrir, en honest, þá veit ég ekki hvort var betra!?!
Jújú, þetta er skárra, öllu drama slepptu.

Og þar sem ég átti smá auð í plastformi, þá ákvað ég að fara á smá sjoppíngsprí, veiiii!
Fékk mér ohhhhh svo góðan geisladisk með Söru Brætman, Live in Las Vegas. Og þetta er gæsahrollur í gegn bara, nammi! Enda eins gott eftir allt sem gekk á í kringum þennan disk, fnæssss.... Lá við að ég gengi í barndóm af græðgi eftir að ég frétti að hann væri komin í búðir. Það er ótrúlegt hvað eitt miðaldra ljón getur verið gráðugt! Sorry baby ;(

En nú sit ég hérna með Söru í botni og bloggast, er að lita á mér hárið í leiðini. Svo praktískir litir til í Hagkaup, verð bara að segja það. Vona að ég verði ekki eins og gulrót, nóg að vera smá asni án hennar, híhí!

Veistu bara hvað! Ég er heppnasti kall í heimi bara, að eiga sonna góðan Dúsk. Hann kom mér á óvart í gær, og gaf mér bara pakka. Sem ég er bæ ðe vei, ekki alleg viss um að ég eigi skilið sko. En hann bestastur gaf mínum.... *drumms please* ... Abarat 2!!! Er bara búinn að vera að bíða eftir þessari bók í tæp tvö ár núna. Og jíha! Ég get heimsótt allt gengið aftur í gegnum hana. Hlakkar ekkert smá til að sökkva mér niður í þessa dásemt eftir Clive Barker. Takk ástin mín.

Jæja, ætla að fara að tékka hvort ég er ennþá með hár, þangað til næst... Time to say goodbye.

4 Comments:

Blogger Svetly said...

..hættusu vrugli rollan þín og farðu að blogga..

24. maí 2005 10:41

 
Blogger aesa2 said...

jájájájájájájá - ég titra af þrá til speki yðar og visku. Fjórða upprisa? Fimmta? Bring it on. Computer looooves you. *hóst*

17. ágúst 2005 00:02

 
Anonymous Nafnlaus said...

Blogging Baby Study Hall: Children's television
Every week Blogging Baby Study Hall will bring you a compilation of past Blogging Baby articles on a particular topic.
Intriguing info. Thanks! Check out my free newsletters online free newsletters online site. Good free newsletters online information.

17. ágúst 2005 00:43

 
Anonymous Nafnlaus said...

I agree with your post. Hey check this out--you're going to love this site. Visit this home based business opportunity site!

17. ágúst 2005 00:52

 

Sendu inn athugasemd

<< Home